Skilmálar netverslunar
Afhendingarmáti og tími:
Hægt er að velja um að fá vöruna senda með póstinum eða sækja hana á Vesturgötu 55, 101 Reykjavík.
Afgreiðslutími er 2-4 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist ef hún er send. Púðar eru gerðir eftir pöntun og afgreiddir á 1-2 vikum.
Pantanir:
Pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur borist.
Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu.
Ef pöntuð vara er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum upphæðina hafi greiðsla farið fram.
Skilaréttur:
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Kaupandi hefur því 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan hefur verið móttekin. Flutnings-og póstburðargjöld (ef einhver) eru ekki endurgreidd nema röng eða gölluð vara hafi verið send.
Endilega verið í sambandi ef einhverjar spurningar vakna og við leysum málin í sameiningu.
Verð:
Öll verð og upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og áskilur Sigurrós bólstrari slf. sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. 24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar.
Sendingarkostnaður:
Sendingargjald er kr. 1.150,- Nema annað sé sérstaklega tekið fram. Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram.
Greiðslumöguleikar:
Hægt er að greiða með greiðslukorti (Visa og Mastercard)
Greiðslumiðlun fer fram í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd - sjá https://www.rapyd.net/is/